Stapahraun 12. lóðastækkun
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3398
29. janúar, 2015
Annað
Fyrirspurn
Te og kaffi sækir 29.10.14 um lóðastækkun á Stapahrauni 12. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 29.10.14, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs. Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til bæjarráðs.
Svar

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn:
"Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir lóðastækkun lóðarinnar Stapahraun 12 í samræmi við fyrirliggjandi gögn og nánari skilmála skipulags- og byggingarfulltrúa."