Stapahraun 12. lóðastækkun
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1739
4. febrúar, 2015
Annað
Fyrirspurn
14.liður úr fundargerð BÆJH frá 29.jan. sl. Te og kaffi sækir 29.10.14 um lóðastækkun á Stapahrauni 12. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 29.10.14, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs. Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til bæjarráðs. Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir lóðastækkun lóðarinnar Stapahraun 12 í samræmi við fyrirliggjandi gögn og nánari skilmála skipulags- og byggingarfulltrúa."
Svar

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti fyrirliggjandi tillögu með 11 samhljóða atkvæðum.