Stekkjarberg 9, deiliskipulag
Stekkjarberg 9
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 589
26. janúar, 2016
Annað
Fyrirspurn
Tekið fyrir að nýju, erindinu var frestað á fundi ráðsins 12.01.2016. Auglýsingu deiliskipulagsins er lokið, athugasemdir bárust. Á fundi skipulags- og byggingarráð þann 17.11.2015 fól ráðið umhverfis- og skipulagsþjónustu að taka saman greinargerð vegna athugasemda.
Svar

Skipulags- og byggingarráð hefur yfirfarið athugasemdir sem hafa borist og vísar í umsagnir umhverfis- og skipulagsþjónustu frá 25.8.15 og 12.01.2016. Skipulags- og byggingarráð samþykkir með 3 atkvæðum að leggja til að málinu verði lokið skv. 1. mgr. 42. gr skipulagslaga 123/2010 og gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar Hafnarfjarðar:
Bæjarstjórn Hafnarfjaðar samþykkir deiliskipulag fyrir Stekkjarberg 9 dags. 16.9.2015 og að málinu verði lokið skv. 42 gr. skipulagslaga nr 123/2010.

Fulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna sitja hjá við afgreiðslu málsins.