Drangahrauni 10.Aðalpartasalan ehf.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 533
22. október, 2014
Annað
Fyrirspurn
Bílar og bílapartar eru á víð og dreif á lóðinni og utan lóðar, m.a. á gangstéttum.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir eigendum skylt að taka til á lóðinni og færa bíla og bílaparta inn fyrir lóðarmörk. Verði ekki brugðist við því innan þriggja vikna verða bílar og bílapartar utan lóðar fjarlægðir á kostnað eigenda.
Enn fremur er vísað í kafla 7.2.4 í byggingarreglugerð: "Lóðarhafa er skylt að ganga snyrtilega frá lóð sinni með gróðri eða á annan hátt í samræmi við samþykkta uppdrætti."