Rauðhella 1.Ólögleg búseta.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 533
22. október, 2014
Annað
Fyrirspurn
Borist hafa upplýsingar um búsetu í rými 01-0106, sem er ólögleg þar sem húsið er á iðnaðarsvæði og innan þynningarsvæðis álversins þar sem búast má við loftmengun.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir eiganda skylt að rýma búsetu úr húsinu innan þriggja vikna. Verði ekki brugðist við því mun skipulags- og byggingarfulltrúi leggja dagsektir á eiganda í samræmi við 56. grein laga um mannvirki nr. 160/2010.