Reykjavíkurvegur 54, byggingarleyfi og endurnýjun á starfsleyfi
Reykjavíkurvegur 54
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 540
11. desember, 2014
Annað
Fyrirspurn
Löður ehf.sækja 10.10.2014 um endurnýjun á starfsleyfi fyrir bílaþvottastöð. Einnig er sótt um byggingarleyfi fyrir breytingu á aðkomu og útliti þvottastöðvar samkvæmt teikningum Kristjáns Ásgeirssonar dagsettar 01.10.2014. Skipulags- og byggingarráð tók jákvætt í erindið 02.12.14 og fól skipulags- og byggingarfulltrúa endanlega afgreiðslu þess með áður settum fyrirvörum.
Svar

Sækja skal um starfsleyfi til heilbrigðisfulltrúa Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis.
Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin í samræmi við 11. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010. Fyrirvarar eru um að hljóvist og mengun verði innan settra marka og aðkoma að stöðinni sé eins og sýnt hefur verið á uppdráttum. Skriflegt byggingarleyfi verður gefið út þegar skilyrði 1-4 liðar 13. greinar mannvirkjalaga hafa verið uppfyllt:

13. gr. Útgáfa byggingarleyfis.
Skilyrði fyrir útgáfu byggingarleyfis eru eftirfarandi:
1. Mannvirkið og notkun þess samræmast skipulagsáætlunum á svæðinu.
2. Aðal- og séruppdrættir hafa verið yfirfarnir og leyfisveitandi hefur áritað þá til staðfestingar á samþykki.
3. Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd, svo sem gatnagerðargjald samkvæmt ákvæðum laga um gatnagerðargjald og bílastæðagjald eða gjald fyrir skipulagsvinnu samkvæmt ákvæðum skipulagslaga, eða samið um greiðslu þeirra. Undanskilin eru þó gjöld sem falla ekki í gjalddaga fyrr en við útgáfu byggingarleyfis.
4. Byggingarstjóri hefur undirritað yfirlýsingu um ábyrgð sína og afhent leyfisveitanda undirritaða ábyrgðaryfirlýsingu þeirra iðnmeistara sem ábyrgð munu bera á einstökum verkþáttum.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 122152 → skrá.is
Hnitnúmer: 10037669