Herjólfsgata 32-34, byggingarleyfi
Herjólfsgata 32
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 535
5. nóvember, 2014
Annað
Fyrirspurn
Herjólfsgata 30 ehf. sækir 09.10.2014 um leyfi til að byggja tvö fjölbýlishús með sitthvorum 16 íbúðum ásamt sameiginlegri bílgeyslu. Fjölbýlishúsin eru á fjórum hæðum, unnið af Ögmundi Skarphéðinssyni dagsettar 07.10.2014. Brunahönnum i tveimur eintökum. Nýjar teikningar ásamt brunahönnun bárust 22.10.14. Nýjar teikningar bárust 3.11.14 með stimpli frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin í samræmi við 11. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010. Þar sem skipulagið er í kæruferli skal tekið fram að verði það fellt úr gildi er allur áorðinn kostnaður á ábyrgð lóðarhafa en ekki Hafnarfjarðarbæjar. Skriflegt byggingarleyfi verður gefið út þegar skilyrði 1-4 liðar 13. greinar mannvirkjalaga hafa verið uppfyllt, m.a. að varmaleiðniútreikningar hafa borist sem uppfylla kröfur byggingarreglugerðar:

13. gr. Útgáfa byggingarleyfis.
Skilyrði fyrir útgáfu byggingarleyfis eru eftirfarandi:
1. Mannvirkið og notkun þess samræmast skipulagsáætlunum á svæðinu.
2. Aðal- og séruppdrættir hafa verið yfirfarnir og leyfisveitandi hefur áritað þá til staðfestingar á samþykki.
3. Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd, svo sem gatnagerðargjald samkvæmt ákvæðum laga um gatnagerðargjald og bílastæðagjald eða gjald fyrir skipulagsvinnu samkvæmt ákvæðum skipulagslaga, eða samið um greiðslu þeirra. Undanskilin eru þó gjöld sem falla ekki í gjalddaga fyrr en við útgáfu byggingarleyfis.
4. Byggingarstjóri hefur undirritað yfirlýsingu um ábyrgð sína og afhent leyfisveitanda undirritaða ábyrgðaryfirlýsingu þeirra iðnmeistara sem ábyrgð munu bera á einstökum verkþáttum.