Starfsemi sýslumanns og ríkisskattstjóra í Hafnarfirði, fyrirspurn
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3389
7. október, 2014
Annað
Fyrirspurn
Fulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna leggja fram eftirfarandi fyrirspurn til bæjarstjóra:
Hefur bæjaryfirvöldum í Hafnarfirði verið tilkynnt um eða haft samráð við þau um fyrirhugaðar breytingar á starfsemi Sýslumannsins í Hafnarfirði og starfsstöð Ríkisskattstjóra í Hafnarfirði? Liggja fyrir upplýsingar frá Fjármálaráðuneyti og Innanríkisráðuneyti um hvenær fyrirhugaðar breytingar eiga að koma til framkvæmda, hvort í þeim felist flutningur opinberra starfa frá sveitarfélaginu, sem og um hver vænt áhrif þeirra eru á þjónustu við bæjarbúa og aðgengi þeirra að henni?
Svar

Bæjarráð vísar til umræðu um þessi mál sem fór fram undir 1. dagskrárlíð en þar kom fram að óskað hefur verið eftir upplýsingum frá viðkomandi ráðuneytum.