Daggarvellir 4 a-b, breyting
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 537
19. nóvember, 2014
Annað
Fyrirspurn
Daggarvellir 4 a-b,húsfélag leggja 11.09.2014 inn reyndarteikningar samkvæmt teikningum Sigurðar Þorvarðarsonar dagsettar 11.09.2014.Nýjar teikingar bárust 06.11.14 með stimpli frá SHS.
Svar

Þar sem bílastæði við húsið fara út fyrir lóðarmörk stækkar skipulags- og byggingarfulltrúi lóðina sem því nemur með tilvísan til 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulags- og byggingarsvið mun vinna nýtt lóðarblað og þinglýsa stækkuninni á húseignina.
Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin í samræmi við 11. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010. Byggingarleyfi verður gefið út þegar skilyrði 1-4 liðar 13. greinar mannvirkjalaga hafa verið uppfyllt, lóðarstækkun hefrur verið þinglýst og gerð hefur verið grein fyrir fjölda bílastæða á lóð m.t.t. skipulagsskilmála.
13. gr. Útgáfa byggingarleyfis.
Skilyrði fyrir útgáfu byggingarleyfis eru eftirfarandi:
1. Mannvirkið og notkun þess samræmast skipulagsáætlunum á svæðinu.
2. Aðal- og séruppdrættir hafa verið yfirfarnir og leyfisveitandi hefur áritað þá til staðfestingar á samþykki.
3. Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd, svo sem gatnagerðargjald samkvæmt ákvæðum laga um gatnagerðargjald og bílastæðagjald eða gjald fyrir skipulagsvinnu samkvæmt ákvæðum skipulagslaga, eða samið um greiðslu þeirra. Undanskilin eru þó gjöld sem falla ekki í gjalddaga fyrr en við útgáfu byggingarleyfis.
4. Byggingarstjóri hefur undirritað yfirlýsingu um ábyrgð sína og afhent leyfisveitanda undirritaða ábyrgðaryfirlýsingu þeirra iðnmeistara sem ábyrgð munu bera á einstökum verkþáttum.