Kaplakriki knatthús matshluti 10, byggingarleyfi
Kaplakriki
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 533
22. október, 2014
Annað
Fyrirspurn
FH.knatthús ehf sækir um 21.07.14 um að byggja knatthús sunnan núverandi íþróttahúss. Einnig er sótt um leyfi til að breyta áður samþykktum tengigangi að knattspyrnuhúsinu, Risanum svo hann þjóni einnig nýju knatthúsi samkvæmt teikningum Sigurðar Einarssonar dags. 11.07.14. Nýjar teikningar bárust 03.10.14.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin í samræmi við 11. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010. Vísað er í brunahönnun Verkís dags. október 2014 varðandi brunavarnir og gestafjölda. Varðandi frávik frá deiliskipulagi er það samþykkt með vísan til 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Byggingarleyfi verður gefið út þegar skilyrði 1-4 liðar 13. greinar mannvirkjalaga hafa verið uppfyllt.
13. gr. Útgáfa byggingarleyfis.
Skilyrði fyrir útgáfu byggingarleyfis eru eftirfarandi:
1. Mannvirkið og notkun þess samræmast skipulagsáætlunum á svæðinu.
2. Aðal- og séruppdrættir hafa verið yfirfarnir og leyfisveitandi hefur áritað þá til staðfestingar á samþykki.
3. Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd, svo sem gatnagerðargjald samkvæmt ákvæðum laga um gatnagerðargjald og bílastæðagjald eða gjald fyrir skipulagsvinnu samkvæmt ákvæðum skipulagslaga, eða samið um greiðslu þeirra. Undanskilin eru þó gjöld sem falla ekki í gjalddaga fyrr en við útgáfu byggingarleyfis.
4. Byggingarstjóri hefur undirritað yfirlýsingu um ábyrgð sína og afhent leyfisveitanda undirritaða ábyrgðaryfirlýsingu þeirra iðnmeistara sem ábyrgð munu bera á einstökum verkþáttum.