Undirhlíðar, áningargerði.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 513
4. júní, 2014
Annað
Fyrirspurn
Guðmundur Smári Guðmundsson formaður Krýsuvíkurnefndar Hestamannafélagsins Sörla óskar eftir í bréfi dags. 25. maí 2014 að fá heimild til að setja upp áningargerði í Undirhlíðum skv. meðfylgjandi gögnum.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi bendir á að umrætt svæði er skilgreint sem skógræktar- og landgræðslusvæði á aðalskipulagi Hafnarfjarðar. Óskað er eftir að umsækjandi leiti umsagnar Skógræktarfélags Hafnarfjarðar og nánari gögnum sem sem sýni staðsetningu og umfang.