Selvogsgata 6
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 513
4. júní, 2014
Annað
Fyrirspurn
Borist hefur kvörtun vegna trjágróðurs á lóð Selvogsgötu 6, sem teygir sig inn á lóð Selvogsgötu 8 ofan jarðar og neðan.
Svar

Samkvæmt grein 7.2.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012 er lóðarhafa skylt að halda vexti trjáa og runna á lóðinni innan lóðarmarka. Lóðarhafa Selvogsgötu 6 er því skylt að fjarlægja þann hluta trjágróðursins sem teygir sig inn á lóð Selvogsgötu 8.