Steinhella 17 B, fyrirspurn um breytta notkun fastanr. 223 893, mhl 02.
Steinhella 17B
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 349
1. júlí, 2014
Annað
Fyrirspurn
Guðmundur Adolfsson f.h. Steinhellu 17 ehf, leggur inn fyrirspurn um hvort heimilt verður að breyta notkun á rými 0101 í mhl02 að Steinhellu 17, úr iðnaði í fiskverkun. Lagt fram bréf Steinhellu 17 ehf dags 28. maí. Lögð fram umsögn Umhverfisráðuneytisins og Umhverfisstofnunar um starfsemi innan þynningarsvæðis álversins dags. 13.09.09 og fundargerð Heilbrigðisnefnd Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis dags. 13.03.14.
Svar

Skipulags- og byggingarráð synjar erindinu eins og það liggur fyrir þar sem engin skrifleg gögn styðja málið.