Ferðaþjónusta fatlaðs fólks á höfuðborgarsvæðinu
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1823
20. mars, 2019
Annað
Fyrirspurn
5.liður úr fundargerð fjölskylduráðs frá 15.mars sl. Fjölskylduráð samþykkir framlagða tillögu um breytt fyrirkomulag á aksturþjónustu fatlaðra þar sem horfið verður frá samstarfi við önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu að Kópavogi undanskildum. Skipaður verður starfshópur með aðkomu notenda til að undirbúa útboð á þjónustunni. Tillögunni er vísað til afgreiðslu í bæjarstjórn.
Fjölskylduráð samþykkir tillöguna með fjórum atkvæðum, einn á móti.
Fulltrúi Samfylkingarinnar styður ekki framlagða tillögu. Frá því samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um ferðaþjónustu fatlaðs fólks hófst árið 2014 hefur þjónustan aukist og þróast. Þekking á þjónustunni hefur aukist og mikil vinna hefur fram við undirbúning útboðs. Engin trygging er fyrir því að Hafnarfjarðarbæ muni bjóðast betri kjör í útboði á eigin vegum. Ekkert sjálfstætt mat hefur farið fram hjá Hafnarfjarðarbæ á því hvort það muni reynast hagkvæmara fyrir bæinn að fara í sjálfstætt útboð á þessari mikilvægu þjónustu. Mikilvægast er að halda áfram að þróa og efla þjónustuna og tryggja samræmingu og samfellu í henni.
Fulltrúi Viðreisnar í Fjölskylduráði bókar svohljóðandi. Viðreisn telur mikilvægt að Hafnarfjarðarbær hafi þarfir notenda ferðaþjónustunnar ávallt að leiðarljósi, óháð rekstrarformi þjónustunnar. Við teljum að ákveðin tækifæri felist í því að sinna þessari mikilvægu þjónustu sjálf, með náinni samvinnu við notendur þegar kemur að þróun þjónustunnar til framtíðar. Samtal og samstarf við notendur þjónustunnar er lykilatriði. Fulltrúi Viðreisnar tekur því undir bókun ráðsins.
Áheyrnarfulltrúi Bæjarlistans styður tillögu meirihlutans að bærinn sjái sjálfur um akstursþjónustu fatlaðra.
Svar

Til máls tekur Helga Ingólfsdóttir.

Einnig tekur til máls Adda María Jóhannsdóttir. Helga Ingólfsdóttir kemur til andsvars. Adda Maía svarar andsvari. Helga kemur þá til andsvars öðru sinni og svarar Helga jafnframt andsvari öðru sinni. Þá kemur Ágúst Bjarni Garðarsson til andsvars og svarar Adda María andsvari. Ágúst Bjarni kemur þá til andsvars öðru sinni sem Adda María svarar einnig öðru sinni. Ágúst Bjarni kemur þá að stuttri athugasemd og sömuleiðis Adda María.

Þá tekur til máls Friðþjófur Helgi Karlsson. Ágúst Bjarni kemur að andsvari sem Friðþjófur Helgi svarar. Ágúst Bjarni kemur að öðru andsvari. Þá kemur Ólafur Ingi Tómasson að andsvari við ræðu Friðþjófs Helga. Einnig kemur til andsvars Rósa Guðbjartsdóttir og svarar Friðþjófur Helgi andsvari. Þá kemur Helga Ingólfsdóttir að andsvari við ræðu Friðþjófs Helga.

Til máls tekur Guðlaug Kristjánsdóttir. Til andsvars kemur Helga Ingólfsdóttir.

Einnig tekur til máls Sigurður Þ. Ragnarsson og þá næst Kristín María Thoroddsen.

Einnig tekur til máls Vaka Ágústsdóttir.

Þá tekur til máls öðru sinni Adda María Jóhannsdóttir. Ágúst Bjarni kemur til andsvars og svarar Adda María andsvari. Til andsvars öðru sinni kemur Ágúst Bjarni og svarar Adda María andsvari öðru sinni. Ágúst Bjarni kemur að stuttri athugasemd sem og Adda María. Einnig til andsvars kemur Helga Ingólfsdóttir. Adda María svarar andsvari. Kemur Helga þá næst til andsvars öðru sinni og svarar Adda María andsvari öðru sinni.

Þá kemur Friðþjófur Helgi upp og leggur til að málinu verði frestað en tillagan er svohljóðandi:

"Tillaga um frestun
Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja til frestun á afgreiðslu tillögunnar þar til fram hafi farið skoðun á því hvaða valmöguleikar séu fyrir hendi, kostnaðaráætlun gerð og samráð haft við notendur þjónustunnar. Mikilvægt er að taka ákvörðun sem þessa að vel ígrunduðu máli og velta upp öllum hliðum þess.

Greinargerð
Þegar ákveðið var að ganga til samstarfs við sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu um ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk árið 2014 voru markmiðin aukin og betri þjónusta fyrir notendur. Markmiðið með samstarfinu var ekki fjárhagslegur sparnaður. Mikilvægt er að þetta verði áfram leiðarljós bæjarstjórnar í þessu stóra og mikilvæga máli.
Í úttekt NOR ehf. frá nóvember 2018 fyrir stjórn SSH kemur fram að það sé niðurstaða greiningarinnar að ekkert bendi til þess að einstök sveitarfélög geti leyst þjónustuna með hagkvæmari hætti á eigin forsendum, en hægt er að ná með áframhaldandi samstarfi. Það er einnig tillaga úttektaraðila að haldið verði áfram með núverandi samstarf um ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk þegar samningar við verktaka falla úr gildi 2019. Í greinargerð sem unnin var af Alta í apríl 2018 kom fram að vissulega væri núverandi þjónusta dýr en með nýju útboði væri hægt ná betri niðurstöðu fyrir áframhaldandi sameiginlega ferðaþjónustu fatlaðs fólks. Í þessari sömu greinargerð kom einnig fram að notendur teldu margt hafa færst til betri vegar í þjónustunni eftir að samstarfinu var komið á. Einnig leggja skýrsluhöfundar Alta áherslu á að ákvörðun sveitarfélags um að draga sig út úr sameiginlegu þjónustunni byggi á eftirfarandi atriðum: 1) kostnaðaráætlun fyrir sveitarfélagið eitt og sér, sem sýnir að það geti gert betur en í sameiginlegu þjónustunni, eftir að vankantar hafa verið sniðnir af og 2) mati á því hvernig þjónustan mun mögulega breytast, ef farið verður úr sameiginlega kerfinu. Hvorugt hefur verið gert í Hafnarfirði.
Ferðaþjónusta fatlaðs fólks er viðkvæm þjónusta og fara verður varlega í allar meiriháttar breytingar á henni. Það á ekki að taka ákvörðun um stórkostlegar breytingar nema brýna nauðsyn beri til. Hafnarfjarðarbær hefur ekki framkvæmt neitt sjálfstætt mat á því hvort bærinn geti gert betur en í sameiginlegu þjónustunni né hvernig þjónustan muni mögulega breytast, ef farið verður úr sameiginlega kerfinu. Þessi óvissa er óþolandi fyrir notendur kerfisins og bæjarstjórn á að taka allar ákvarðanir í þessu máli út frá hagsmunum notenda. Þess vegna er mikilvægt að bæjarstjórn samþykki frestunartillögu."

Adda María Jóhannsdóttir
Friðþjófur Helgi Karlsson

Ber forseti upp fyrirliggjandi tillögu um frestun málsins. og er tillagan felld þar sem tveir fulltrúar Samfylkingar greiða atkvæði með tillögunni, fulltrúar meirihluta og Miðflokksins greiða atkvæði gegn tillögu um frestun og aðrir fulltrúar sitja hjá.

Næst ber forseti upp fyrirliggjandi tillögu sem send var til afgreiðslu úr fjölskylduráði, en tillagan er svohljóðandi:

"Fjölskylduráð Hafnarfjarðar leggur til að að horfið verði frá samstarfi við önnur sveitarfélög innan SSH um ferðaþjónustu fatlaðra og þess í stað verði undirbúningur hafinn að útboði á akstursþjónustu fyrir fatlaða í samræmi við lög um félagsþjónustu sveitarfélaga og innkaupareglur Hafnarfjarðarbæjar. Markmið með útboði verði: skilvirkari þjónusta með auknu sjálfræði notenda án Þess að skerða þjónustu eins og hún er skilgreind í þjónustulýsingu.

Fjölskylduráð samþykkir að skipa starfshóp til undirbúnings á útboði. Starfshópinn munu skipa 3 fulltrúar skipaðir af Fjölskylduráði ásamt fulltrúa frá Ráðgjafarráði fatlaðra. Með hópnum munu starfa innkaupastjóri, fjármálastjóri og sviðsstjóri fjölskylduþjónustu. Starfshópurinn hefur heimild til þess að fá ráðgjöf sérfræðinga ef þurfa þykir og er auk þess ætlað að taka mið af fyrirliggjandi þjónustulýsingu og rekstrarupplýsingum sem lagðar hafa verið fram af hálfu núverandi rekstraraðila. Starfshópurinn skal ljúka störfum fyrir 1. Júní 2019.

Greinargerð:

Akstursþjónusta fatlaðra er í eðli sínu nærþjónusta sem byggir í mörgum tilfellum á trausti og persónulegri þjónustu við viðkvæman hóp.

Hlutfall Hafnarfjarðar í sameiginlegri akstursþjónustu er í kringum 15,7% sem eru rúmlega 62 þúsund ferðir á ári. Hafnarfjarðarbær sinnti þessu verkefni fram til ársloka 2014 þegar samningur um sameiginlega akstursþjónustu tók gildi. Þannig er mikil reynsla af verkefninu til staðar hjá sveitarfélaginu auk þess sem sviðstjóri Fjölskylduþjónustu Hafnarfjarðar hefur setið í samráðshópi félagsmálastjóra á höfuðborgarsvæðinu á vegum SSH sem fulltrúi sveitarfélagsins í fagráðshópi um akstursþjónustuna sem hefur borið faglega og fjárhagslega ábyrgð á verkefninu samkvæmt samkomulagi SSH ferðaþjónustu fatlaðs fólks frá maí 2014.

Er tillagan samþykkt með níu atkvæðum en tveir fulltrúar Samfylkingar greiða atkvæði gegn tillögunni.

Adda María kemur að svohljóðandi bókun:

"Fulltrúar Samfylkingarinnar gagnrýna þessa ákvarðanatöku og telja afar misráðið hverfa frá samstarfi við önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu varðandi akstursþjónustu fyrir fatlað fólk. Frá því að samstarfið hófst hefur þekking á þjónustunni aukist og þróast. Engin trygging er fyrir því að Hafnarfjarðarbæ bjóðist betri kjör í útboði á eigin vegum og ekkert sjálfstætt mat verið á það lagt. Þá hefur skort á samráð við hlutaðeigandi aðila, m.a. ráðgjafaráð fatlaðs fólks. Við teljum brýnt að taka ákvarðanir um þessa mikilvægu en um leið viðkvæmu þjónustu að vel ígrunduðu máli en það hefur ekki verið gert hér. Mikilvægt er að tryggja samfellu í þjónustunni og óljós fjárhagslegur ávinningur af breyttu rekstrarfyrirkomulagi má ekki verða til þess að setja hana í uppnám."

Adda María Jóhannsdóttir
Friðþjófur Helgi Karlsson