Víðistaðatún, framtíðarnotkun
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 6 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 646
3. apríl, 2018
Annað
Fyrirspurn
Tekin fyrir að nýju bókun umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 21.2 s.l. þar sem ítrekuð er beiðni frá 31.5. 2017 um umsögn skipulags- og byggingarráðs á tillögu um staðsetningu hundagerðis á Víðistaðatúni skv. skissu Landslags ehf. Lögð fram umbeðin umsögn umhverfis- og skipulagsþjónustu dags. 19. mars 2018.
Svar

Skipulags- og byggingarráð tekur undir framlagða umsögn umhverfis- og skipulagsþjónustu dags. 19. mars 2018 og beinir því til umhverfis- og skipulagsþjónustu að finna gerðinu annan stað en á Víðistaðatúni.