Leigusamningur um frjálsíþróttahús FH í Kaplakrika
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3390
27. október, 2014
Annað
Fyrirspurn
Tekið fyrir að nýju afgreiðsla fjölskylduráðs frá 27.8. sl. á samningnum. Lögð fram ný samningsdrög.
Svar

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi samning og felur bæjarstjóra að ganga frá málinu. Jafnframt er bæjarstjóra falið að ljúka við gerð þjónustusamninga við þau íþróttafélög sem sinna rekstri íþróttamannvirkja.