Suðurnesjalína 2, umsókn Landsnets hf um framkvæmdaleyfi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 512
28. maí, 2014
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Landsnet dags. 07.05.14 um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu Suðurnesjalínu frá Hamranesvirki að bæjarmörkum við Sveitarfélagið Voga. Lögð fram skýrsla Eflu dags. apríl 2014: Lýsing mannvirkja við útgáfu framkvæmdaleyfis, matsskýrsla Eflu dags. 10.08.09, yfirlitskort, álit Skipulagsstofnunar á mati á umhverfisáhrifum dags. 17.09.09, leyfi Orkustofnunar dags. 05.12.13, ákvarðanir atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins dags. 24.02.14 um eignarnám og teikningar af möstrum. Við samþykkt breytingar á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005-2025 fyrir Suðvesturlínur var sá fyrirvari gerður um nákvæma legu línustæða að þeim verði hnikað til ef áður óþekktar fornminjar eða náttúruminjar koma í ljós við nánari athugun Hafnarfjarðarbæjar. Lögð fram viðbótar fornleifaskráning Fornleifastofunnar dags. Apríl 2014.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi vísar erindinu til umsagnar Byggðasafns Hafnarjarðar og Minjastofnunar Íslands. Þegar umsagnir hafa borist vísast erindið til Skipulags- og byggingarráðs.