ESB-viðræður, áskorun
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1742
18. mars, 2015
Annað
Fyrirspurn
Tillaga að ályktun:
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar skorar á ríkisstjórn Íslands og Alþingi að tryggja aðkomu þjóðarinnar að ákvörðun um framhald aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið. Í samræmi við gefin fyrirheit verði framhald aðildarviðræðna sett í þjóðaratkvæðagreiðslu. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar áréttar einnig stuðning sinn við samþykkt stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 28. febrúar 2014 þar sem stjórnin hvetur til þess að Alþingi tryggi sveitarfélögunum í landinu svigrúm til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri áður en til breytinga á stöðu aðildarviðræðna kemur.
Greinargerð:
Eins og fram kemur í greinargerð sem unnin var fyrir Samband íslenskra sveitarfélaga um áhrif Evrópusambandsaðildar á íslenska sveitarstjórnarstigið er ljóst að áhrif aðildar á íslensk sveitarfélög yrðu umtalsverð. Þó er ekki hægt að segja nákvæmlega fyrir um heildarávinning sveitarfélaga fyrr en niðurstöður aðildarviðræðna liggja fyrir. Þá hafa íslensk sveitarfélög, meðal annars Hafnarfjarðarbær, verið í forystu um aukið lýðræði og beina þátttöku kjósenda í stórum og mikilvægum ákvörðunum sem varða samfélagið í heild og hagsmuni þess. Þannig tryggði bæjarstjórn Hafnarfjarðar á sínum tíma íbúum bæjarins beint og milliliðalaust lýðræði með því að setja inn í samþykktir bæjarins heimild til að leggja þýðingarmikil mál í dóm kjósenda. Að baki þeim breytingum lá það grundvallarsjónarmið að undirstaða trausts sambands almennings og stjórnmála væri gagnkvæmni, að forsenda trausts almennings til stjórnmálanna sé að stjórnmálin treysti fólkinu. Telur bæjarstjórn að hér sé um svo stórt hagsmunamál að ræða að eðlilegt sé að þjóðin fái aðkomu að ákvörðun um framhald þess.
Svar

Gunnar Axel Axelsson tók til máls, þá Eyrún Ósk Jónsdóttir, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir og Adda María Jóhannsdóttir.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti fyrirliggjandi ályktun með 6 samhljóð atkvæðum en 5 bæjarfulltrúar sátu hjá.

Rósa Guðbjartsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
"Mikilvægt er að sem breiðust sátt verði um framhald aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið. Ákvörðun og bréf ráðherra til ESB um stöðu aðildarviðræðnanna er hins vegar ekki viðfangsefni sveitarstjórnarstigsins heldur Alþingis og ríkisstjórnar. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins skora á og treysta því að kjörnir fulltrúar á þeim vettvangi leiði málið til lykta þannig að sem víðtækust sátt náist um það."

Guðlaug Kristjánsdóttir gerði grein fyrir atkvæði sínu.