Fundargerðir 2014, til kynningar í bæjarstjórn.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1731
1. október, 2014
Annað
‹ 3
4
Fyrirspurn
Fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 24.sept.sl. a. Fundargerð stjórnar SORPU bs. frá 12.sept.sl. b. Fundargerðir stjórnar STRÆTÓ bs. frá 15. og 29. ágúst sl. Fundargerð bæjarráðs frá 29. sept. sl. a. fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 12. sept. sl. b. Fundargerð Hafnarstjórnar frá 23. sept. sl. Fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 23.sept. sl. Fundargerð fjölskylduráðs frá 24.sept.sl. a. Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 19.sept.sl. Fundargerð fræðsluráðs frá 22.sept.sl.
Svar

Helga Ingólfsdóttir kvaddi sér hljóðs vegna 1. liðar fundargerðar umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 24. september sl.Thorsplan, útfærsla.

Gunnar Axel Axelsson kvaddi sér hljóðs vegna 1. liðar fundargerðar fræðsluráðs frá 22. september sl. Áslandsskóli, húsnæðis- og lóðamál, bæjarstjóri Haraldur L. Haraldsson tók einnig til máls, Gunnar Axel Axelsson kom að andsvari við máli bæjarstjóra Haraldar L. Haraldssonar. Helga Ingólfsdóttir tók þá til máls, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að andsvari við máli Helgu Ingólfsdóttur, Helga Ingólfsdóttir svaraði andsvari, Gunnar Axel Axelsson kom einnig að andsvari við máli Helgu Ingólfsdóttur.

Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kvaddi sér hljóðs vegna 9. liðar fundargerðar skipulags- og byggingarráðs, Suðurnesjalína 2, umsókn Landsnets hf um framkvæmdaleyfi, síðan tók Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir aftur til máls, þá Ólafur Ingi Tómasson, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að andsvari við máli Ólafs Inga Tómassonar, Ólafur Ingi Tómasson svaraði andsvari, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að andsvari öðru sinni, Ólafur Ingi Tómasson svaraði andsvari öðru sinni.
Gunnar Axel Axelsson kom einnig að andsvari við máli Ólafs Inga Tómassonar, Ólafur Ingi Tómasson svaraði andsvari, Gunnar Axel Axelsson kom að andsvari öðru sinni, Ólafur Ingi Tómasson svaraði andsvari, Ófeigur Friðriksson kom einngi að andsvari við máli Ólafs Inga Tómassonar.

Helga Ingólfsdóttir kvaddi sér hljóðs vegan 6. liðar fundargerðar fjölskylduráðs frá 24. september sl., Gjaldskrár, starfshópur, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kom að andsvari, Helga Ingólfsdóttir svaraði andsvari, bæjarstjóri Haraldur L. Haraldsson kom einnig að andsvari, Gunnar Axel Axelsson kom einnig að andsvari.

Gunnar Axel Axelsson kvaddi sér hljóðs vegna fundargerða umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 24. september sl. og fjölskylduráðs 24. september sl. varðandi málefni hjúrkunarheimilis og vegna gjaldskrárstarfshóps, Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari, Gunnar Axel Axelsson svaraði andsvari, Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari öðru sinni.
Guðlaug Kristjánsdóttir svaraði einnig andsvari og tók Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir við stjórn fundarins á meðan,Rósa Guðbjartsdóttir kom að stuttri athugasemd.

Fleiri kvöddu sér ekki hljóðs.