Fundargerðir 2014, til kynningar í bæjarstjórn.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1736
10. desember, 2014
Annað
Fyrirspurn
Fundargerð umhverfis-og framkvæmdaráðs frá 3.des. sl. a. Fundargerðir stjórnar Strætó bs. frá 5., 20. og 24.nóv. Fundargerðir bæjarráðs frá 27.nóv. og 4.des. sl. a. Fundargerð heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 24.nóv. b. Fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 2.des. sl. c. Fundargerð stjórnar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 17.nóv. sl. d. Fundargerðir samtaka orkusveitarfélaga frá 10.okt.og 26.nóv. sl. Fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 2.des. sl. Fundargerð fjölskylduráðs frá 5.des. sl. a. Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 1.des. sl. Fundargerðir fræðsluráðs frá 1. og 8.des. sl.
Svar

Gunnar Axel Axelsson kvaddi sér hljóðs vegna 11. liðar fundargerðar bæjarráðs frá 4.12. sl., Motus ehf vanskilainnheimta, Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari, Gunnar Axel Axelsson svaraði andsvari, Rósa Guðbjartsdóttir koma að andsvari öðru sinni, Gunnar Axel Axelsson svaraði andsvari öðru sinni.
Einar Birki Einarsson kom einnig að andsvari við ræðu Gunnars Axels Axelssonar.
Guðlaug Kristjánsdóttir tók þá til máls vegna sama máls og tók 1. varaforseti Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir við stjórn fundarins á meðan, Gunnar Axel Axelsson kom að andsvari.

Forseti Guðlaug Kristjánsdóttir tók við stjórn fundarins að nýju.

Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir tók til máls vegna sama máls sem og fundargerðar bæjarráðs frá 4. 12. sl., undirliður a) Fundargerð heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis: Reykjavíkurvegur 54, Mosaskemmdir í iðnaðarsvæðinu í Hafnarfirði og Olíumengun í Hafnarfjarðarhöfn, Ólafur Ingi Tómasson kom að andsvari, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir svaraði andsvari, Guðlaug Kristjánsdóttir kom einnig að andsvari við ræðu Guðrúnar Ágústu Guðmundsdóttur sem tók við stjórn fundarins á meðan, Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir svaraði andsvari.

Bæjarstjóri Haraldur L. Haraldsson tók þá til máls vegna þeirra mála sem voru til umræðu.

Gunnar Axel Axelsson kvaddi sér hljóðs öðru sinni og vegna 7. liðar funargerðar bæjarráðs frá 4. 12. sl., Straumur útboð, Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari, Gunnar Axel Axelsson svaraði andsvari.

Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir kvaddi sér hljóðs öðru sinni og vegna 2. liðar fundargerðar fræðsluráðs frá 1.12. sl., Dagforeldrar leyfisbeiðnir, sem og 8. liðar Áslandsskóli, húsnæðis- og lóðamál, Rósa Guðbjartsdóttir kom að andsvari.

Fleiri kvöddu sér ekki hljóðs.