Fundargerðir 2014, til kynningar í bæjarstjórn.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1723
16. apríl, 2014
Annað
‹ 6
5
Fyrirspurn
Fundargerð fjölskylduráðs frá 9.apríl sl. a. Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 31.mars sl. Fundargerð fræðsluráðs frá 7.apríl sl. Fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 9.apríl sl. a. Fundargerð stjórnar SORPU bs. frá 7.apríl sl. b. Fundargerð stjórnar STRÆTÓ bs. frá 28.mars sl. Fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 8.apríl sl. Fundargerð bæjarráðs frá 10.apríl sl. a. Fundargerð heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 31.mars sl. b. Fundargerðir menningar- og ferðamálanefndar frá 28.mars og 3.apríl sl.
Svar

Lúðvík Geirsson kvaddi sér hljóðs vegna fundargerðar fjölskylduráðs frá 9.apríl sl. 4. liðar Hjúkrunarheimili Hádegisskarði 1.

Kristinn Andersen kvaddi sér hljóðs vegna fundarskapa og þá bæjarstjóri Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir.

Margrét Gauja Magnúdóttir kvaddi sér hljóðs vegna fundargerðar umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 9. apríl sl. 6. liðar Plastpokar og tók varaforseti Kristinn Andersen við stjórn fundarins undir ræðu hennar, Gunnar Axel Axelsson kom að andsvari,Helga Ingólfsdóttir kom einnig að andsvari.
Bæjarstjóri Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir tók einnig til máls vegna sama liðar.

Forseti Margrét Gauja Magnúsdóttir tók við stjórn fundarins að nýju.

Ólafur Ingi Tómasson tók þá einnig til máls vegna sama liðar fundargerðar umhverfis- og framkvæmdaráðs.
Eyjólfur Sæmundsson tók þessu næst til máls vegna sama liðar sem og vegna fundargerðar fræðsluráðs frá 7. apríl sl. 4. liðar Mötuneyti grunnskóla.

Guðfinna Guðmundsdóttir tók þá einnig til máls vegna fundargerðar umhverfis- og framkvæmdaráðs 6. liðar Plastpokar sem og 4. liðar fundargerðar fræðsluráðs frá 7. apríl sl. Mötuneyti grunnskóla.
Margrét Gauja Magnúsdóttir tók þá til máls og tók varaforseti Kristinn Andersen við stjórn fundarins undir ræðu hennar, Eyjólfur Sæmundsson kom að andsvari við ræðu Margrétar Gauju Magnúsdóttur, Guðfinna Guðmundsdóttir kom einnig að andsvari, Margrét Gauja Magnúsdóttir svaraði andsvari og tók síðan við stjórn fundarins að nýju.

Kristinn Andersen tók einnig til máls varðandi sama lið fundargerðar umhverfis- og framkvæmdaráðs.
Margrét Gauja Magnúsdóttir kom að andsvari og tók Kristinn Andersen við stjórn fundarins á meðan.
Margrét Gauja Magnúsdóttir tók við stjórn fundarins að nýju og Kristinn Andersen svaraði andsvari.

Eyjólfur Sæmundsson tók síðan til máls varðandi sama máls, þá Guðfinna Guðmundsdóttir.

Fleiri kvöddu sér ekki hljóðs.