Reykjavíkurvegur 4b, umsókn um byggingarleyfi
Reykjavíkurvegur 4B
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 520
23. júlí, 2014
Annað
Fyrirspurn
Daníel Viðar Elíasson sækir með vefpósti um að reisa skjólvegg meðfram Reykjvíkurvegi og Hverfisgötu.
Svar

Kvöð er í þeim lóðaleigusamningi sem er undirritaður um að við gróðursetningu og umhirðu trjáa beri að sjá til þess að útsýni skerðist ekki. Nýr lóðarsamningur hefur ekki verið undirritaður, og er skjólveggurinn því utan lóðar. Þar er texti sem segir að girðingar verði ekki leyfðar ef svo háttar að þær séu taldar óþarfar eða til lýta. Ekki er hægt að taka erindið til afgreiðslu nema uppdrættir af skjólveggnum berist og nýr lóðarleigusamningur verði undirritaður.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 122113 → skrá.is
Hnitnúmer: 10037634