Hnoðravellir 52, 54, 56 og 58, deiliskipulagsbreyting.
Hnoðravellir 52
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 344
8. apríl, 2014
Annað
Fyrirspurn
Brynja hússjóður Öryrkjabandalagsins sækir með tölvuposti dags. 11.12.13 um að breyta deiliskipulagi lóðanna í samræmi við innlagðan uppdrátt. Lóðirnar sameinaðar og raðhúsaíbúðum fjölgað úr 4 í 7. Umsögn Umhverfis- og framkvæmdasviðs liggur fyrir. Skipulags- og byggingarráð gerði athugasemd við fyrirkomulag bílastæða. Lagfærður uppdráttur dags. 22.01.14 hefur borist, þar sem brugðist hefur verið við athugasemdum. Erindið var grennarkynnt skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og er athugasemdatíma lokið. Athugasemdir bárust. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 26.02.14, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs. Erindinu var frestað á síðasta fundi.
Svar

Á fundinn kom fulltrúi Brynju hússjóðs Öryrkjabandalagsins og gerði grein fyrir sjónarmiðum þeirra vegna athugasemda sem bárust.

Skipulags- og byggingarráð tekur undir svar skipulags og byggingarsviðs og gerir að sínu. Ekki er talið að umrædd breyting muni hafa verulega aukið umferðarálag á hverfið umfram það sem gildandi deiliskipulag hefði gert ráð fyrir, en gert er ráð fyrir 2 stæðum fyrir hverja íbúð. Minnkun og fjölgún íbúða er þá í ágætu samræmi við almenna þróun á byggingarmarkaði og svarar þörf fyrir minni íbúðir í nýjum hverfum, án þess að byggingarmagn sé aukið, enda eru nýleg fordæmi um samsvarandi afgreiðslu erinda í hverfinu.

Skipulags- og byggingarráð samþykkir að ljúka deiliskipulaginu samkvæmt 43. grein skipulagsllaga nr. 123/2010. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:
"Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir breytingu á deiliskipulagi 6. áfanga Valla hvað varðar lóðirnar Hnoðravelli 52, 54, 56 og 58 dags. 22.01.14 og að málinu verði lokið skv. 43. grein skipulagslaga nr. 123/2010."

221 Hafnarfjörður
Landnúmer: 204185 → skrá.is
Hnitnúmer: 10085554