Hraðlest, fluglest
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 4 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3438
30. júní, 2016
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram minnisblað frá bæjarlögmanni.
Eftirfarandi var bókað á fundi skipulags- og byggingaráðs 03.05.2016: 1312019 - Hraðlest, fluglest Tekin fyrir að nýju drög að samningi um hraðlest sem bæjarráð vísaði til umsagnar 7. apríl sl. Skipulags- og byggingarráð bendir á að í svæðisskipulagi Höfuðborgarsvæðisins er gert ráð fyrir borgarlínu sem mun fara svipaða leið frá Hafnarfirði til Reykjavíkur og fyrirhuguð hraðlest. Undirbúningur borgarlínunar er þegar hafinn og leggur skipulags- og byggingarráð til að ekki verði teknar ákvarðanir varðandi hraðlest á meðan unnið er að borgarlínunni.
Sigríður Kristinsdóttir bæjarlögmaður mætir á fundinn.
Svar

Áliti bæjarlögmanns er vísað til stjórnar SSH. Óskað verður eftir frekari kynningu fyrir bæjarfulltrúa.