Hafnarstjórn - 1441
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3366
19. desember, 2013
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 10. desember sl.
Svar

Lagt fram til kynningar. 13.1. 1311012 - Fernanda, brennandi skip Farið yfir framhald aðgerða og athafna varðandi Fernanda frá síðast fundi hafnarstjórnar.
Farið var yfir drög að fundargerð rýnifundar, sem haldinn var hjá Landhelgisgæslunni, um viðbrögð við brunanum í Fernanda og eftirmála hans. Kristinn greindi frá gangi mála þegar skipið var á leið til Hafnarfjarðar og þar til skipið var dregið brennandi úr höfn aftur. Ennfremur frá fundum sem haldnir voru í framhaldinu.
Hafnarstjórn beinir því til hafnarstjóra að unnir verði verkferlar fyrir Hafnarfjarðarhöfn um viðbrögð við sambærilegar aðstæður.
Ennfremur er hafnarstjóra falið að beina ábendingum til Landhelgisgæslunnar um tiltekin atriði í drögum að fundargerð rýnifundarins.