Selhraun norður stækkun, breyting á deiliskipulagi
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 342
11. mars, 2014
Samþykkt
Fyrirspurn
Tekin fyrir að nýju tillaga VA-arkitekta dags. 25.11.2013 að breytingu á deiliskipulagi fyrir Selhraun Norður. Mörk norðurhluta svæðisins eru færð til austurs og ný lóð stofnuð. Stefna og almennir skilmálar fyrir Selhraun Norður gilda fyrir sækkun svæðisins. Kynningarfundur var haldinn 18.11.13. Skipulagstillagan var auglýst skv. 41. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Athugasemdatíma er lokið, engar athugasemdir bárust. Frestað á síðasta fundi.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir deiliskipulagið og að afgreiðslu verði lokið skv. 42. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar, sem verði tekin á dagskrá þegar staðfesting aðalskipulags hefur verið birt í b-deild Stjórnartíðinda:
"Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir breytingu deiliskipulags fyrir Selhraun norður dags. 25.11.2013 og að afgreiðslu verði lokið skv. 42. grein skipulagslaga nr. 123/2010."