Aðalskipulag Hafnarfjarðar, breyting á svæði við Ásbraut
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 334
19. nóvember, 2013
Samþykkt
Fyrirspurn
Tekin til umræðu tillaga Skipulags- og byggingarsviðs að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005-2025 hvað varðar svæði norðan Ásbrautar milli Tjarnarvalla og Selhellu. Lagt er til að landnotkun verði breytt úr blandaðri notkun opinberar stofnanir og opið svæði til sérstakra nota í athafnasvæði, og tengist það þá svæðinu Selhraun norður. Skipulagslýsing var samþykkt af bæjarstjórn og hefur hlotið meðferð samkvæmt 1. mgr. 30. greinar skipulagslaga nr. 123/2010. Lögð fram tillaga Skipulags- og byggingarsviðs að breytingunni dags. x. Haldinn var kynningarfundur á skipulagstillögunni 18.11.13.
Svar


Skipulags- og byggingarráð samþykkir að tillaga að aðalskipulagsbreytingunni verði auglýst skv. 31. grein skipulagslaga nr. 123/2010 og gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:
"Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005-2025 hvað varðar svæði norðan Ásbrautar milli Tjarnarvalla og Selhellu dags. 7.10.2013 verði auglýst samkvæmt 31. grein skipulagslaga nr. 123/2010."