Strandgata 31 og 33, kauptilboð
Strandgata 33
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3360
14. október, 2013
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram nýtt tilboð Áss fasteignasölu f.h. óstofnaðs hlutafélags, dags. 10.10.2013 í ofanfgreindar húseignir. Tilboðið gildir til kl. 16:00 mánudaginn 14.10. nk. Sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmda mætti á fundinn og fór yfir málið.
Svar

Bæjarráð synjar erindinu eins og það liggur fyrir þar sem ekki liggur fyrir svar frá Landsbankanum sem er skráður þinglýstur eigandi Strandgötu 33 en Hafnarfjarðarbær er með kaupleigusamninga að eigninni. Jafnframt felur bæjarráð bæjarstjóra að vinna áfram að málinu.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 122409 → skrá.is
Hnitnúmer: 10038631