Suðurhvammur 15, yfirbygging á svölum
Suðurhvammur 15
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 484
30. október, 2013
Annað
Fyrirspurn
Elísabet Valgeirsdóttir og Sigfús Þór Magnússon sækja 18.09.13 um að byggja yfir svalir samkvæmt teikningum Gísla Gunnarssonar dags. 21.08.20. Ný teikning barst dagsett 18.10.13. Skipulags- og byggingarráð tók jákvætt í fyrirspurn um málið með þeim fyrirvara að teikningar bærust sem samræmdust byggingarreglugerð. Í byggingarreglugerð segir m.a. í grein 4.3.1: "Aðaluppdráttur að húsi skal sýna grunnflöt allra hæða þess og milliflata, mismunandi sneiðar húss og lóðar og allar hliðar." Innlagðir uppdrættir sýna einungis umrædda íbúð og uppfylla þar með ekki reglugerðarákvæðið sem kveður á um að uppdrættirnir skuli sýna húsið.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin í samræmi við 11. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010, en fellur frá fyrri samþykkt um nýja skráningartöflu. Byggingarleyfi verður gefið út þegar skilyrði 1-4 liðar 13. greinar mannvirkjalaga hafa verið uppfyllt.
13. gr. Útgáfa byggingarleyfis.
Skilyrði fyrir útgáfu byggingarleyfis eru eftirfarandi:
1. Mannvirkið og notkun þess samræmast skipulagsáætlunum á svæðinu.
2. Aðal- og séruppdrættir hafa verið yfirfarnir og leyfisveitandi hefur áritað þá til staðfestingar á samþykki. Aðaluppdráttur skal hér sýna grunnflöt þeirrar hæðar hússins alls sem breytingin á við ásamt útlit þeirra húshliða (alls hússins) sem breytingin hefur áhrif á.
3. Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd, svo sem gatnagerðargjald samkvæmt ákvæðum laga um gatnagerðargjald og bílastæðagjald eða gjald fyrir skipulagsvinnu samkvæmt ákvæðum skipulagslaga, eða samið um greiðslu þeirra. Undanskilin eru þó gjöld sem falla ekki í gjalddaga fyrr en við útgáfu byggingarleyfis.
4. Byggingarstjóri hefur undirritað yfirlýsingu um ábyrgð sína og afhent leyfisveitanda undirritaða ábyrgðaryfirlýsingu þeirra iðnmeistara sem ábyrgð munu bera á einstökum verkþáttum.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 122612 → skrá.is
Hnitnúmer: 10026040