Engjavellir 12,girðingar
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 478
18. september, 2013
Annað
Fyrirspurn
Íbúð 0203 hefur nú þegar girt af sinn sérafnotaflöt með girðingu sem er um 180 cm. á hæð, eigandi íbúðar 0202 hefur hafið framkvæmdir við að girða af sinn sérafnotaflöt. Ekki hefur verið sótt um neinar af þessum girðingum.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi bendir á að girðingar á lóðamörkum eða nær þeim en 180 cm eru byggingarleyfisskyldar og háðar samþykki lóðarhafa aðliggjandi lóðar. Sjá meðfylgjandi athugasemdir. Eigendum íbúða 0202 og 0203 ber að fjarlægja girðingarnar inna 3 vikna eða sækja um leyfi fyrir þeim með skriflegu samþykki nágranna að öðrum kosti.