Uppsetning siglingamerkis, gjöf frá Cuxhvaven
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 328
9. september, 2013
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi Cuxhavenfélagsins um uppsetningu "Kugelbake" (siglingarmerkis) frá stjórn vinabæjarfélagsins Cuxhaven-Hafnarfjörður í Hafnarfirði, varðandi fyrirhugaða 25 ára afmælisgjöf frá vinabæjarfélaginu í Cuxhaven.
Svar

Skipulags- og byggingarráð felur skipulags- og byggingarsviði að skoða og vinna tillögu að því hvernig hægt sé að koma merkinu fyrir á lóðamörkum við gömlu Flensborgarlóðina/hafnarbúðirna. Þannig gæti merkið markað innkomu að Hafnarsvæðinu með afgerandi hætti og notið sín sem táknrænn innsiglingaviti um vinarbæjarsamband Hafnarfjarðar og Cuxhaven.