Cuxhaven vinabæjarsamstarf 25 ára
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3357
29. ágúst, 2013
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi Cuxhavenfélagsins sent í tölvupósti 26. ágúst 2013 varðandi 25 ára afmæli vinarbæjarsamstarfs Hafnarfjarðarbæjar og Cuxhaven en stefnt er að afmælishátíð í Hafnarfirði þann 12. október nk. í tengslum við´"Íþróttaviku" sem haldin verður 7. - 14. október. Menningar- og ferðamálafulltrúi mætti á fundinn og fór yfir málið.
Svar

Lagt fram.

Bæjarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram eftirfarandi bókun:
"Bæjarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins óska eftir upplýsingum um allan kostnað við vinabæjarsamstarf frá janúar 2012- dagsins í dag. Einnig er óskað eftir sundurliðun á ferðakostnaði, uppihaldi, þátttökufjölda jafnt vegna vinabæjarheimsóknanna sjálfra sem undirbúningsfunda og ferða þeim tengdum."