Mávahraun 5 og 7 og Svöluhraun 6 og 8, göngustígur
Mávahraun 8
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 526
3. september, 2014
Annað
Fyrirspurn
Komið hefur í ljós að hindranir eru á stígnum milli Svöluhrauns 6 og 8 og við Mávahraun 7. Sorptunnuskýli er staðsett á göngustíg milli húsa nr. 6 og 8 við Svöluhraun. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 14.05.2014 eigendum viðkomandi húsa skylt að fjarlægja hindranirnar. Ekki hefur verið brugðist við erindinu.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi ítrekar fyrirmælin og gerir eigendum Svöluhrauns 6 skylt að finna sorpskýlinu stað innan lóðar innan 4 vikna. Verði ekki brugðist við því verður það fjarlægt á kostnað eigenda í samræmi við heimild í 56. grein laga um mannvirki nr. 160/2010.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 121827 → skrá.is
Hnitnúmer: 10036008