Reykjavíkurvegur 76, 78 og 80, deiliskipulagsbreyting.
Reykjavíkurvegur 76
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 480
2. október, 2013
Annað
Fyrirspurn
Actavis ehf. sækir þann 20.08.2013 um breytingu á gildandi deiliskipulagi vegna stækkunar á matsal fyrirtækisins að Reykjavíkurvegi 78. Deiliskipulagið nær yfir Reykjavíkurveg 76, 78 og 80. Skipulags- og byggingarráð vísaði erindinu í grenndarkynningu skv. 1. mgr. 44. greinar skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynningu er lokið, engin athugasemd barst.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir erindið og að afgreiðslu verði lokið skv. 4. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 122163 → skrá.is
Hnitnúmer: 10037680