Álfhella 9 umgengni á lóð
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 514
11. júní, 2014
Annað
Fyrirspurn
Athugasemd er gerð við lóðarumgengi að Álfhellu 9 sem er í eigu Brimrásar ehf. Lóðin lítur út eins og ruslaaugur og er full af gámum sem ekki er leyfi fyrir. Sjá meðfylgjandi myndir. Skipulags- og byggingarfulltrúi beindi því 14.08.13 til eigenda að koma lóðinni í viðunandi horf innan 4 vikna. Ekki hefur verið brugðist við erindinu.
Svar

Í 56. grein laga um mannvirki nr. 160/2010 segir: "Sé ásigkomulagi, frágangi, umhverfi eða viðhaldi húss, annars mannvirkis eða lóðar ábótavant, af því stafar hætta eða það telst skaðlegt heilsu að mati byggingarfulltrúa eða Mannvirkjastofnunar, eða ekki er gengið frá því samkvæmt samþykktum uppdráttum, lögum, reglugerðum og byggingarlýsingu, skal gera eiganda eða umráðamanni þess aðvart og leggja fyrir hann að bæta úr því sem áfátt er. ... Mannvirkjastofnun og byggingarfulltrúa er heimilt að beita dagsektum allt að 500.000 kr. til að knýja menn til þeirra verka sem þau skulu hlutast til um samkvæmt lögum þessum og reglugerðum, eða láta af ólögmætu atferli.
Skipulags-og byggingarfulltrúi ítrekar tilmæli sín til lóðareigenda að koma lóðinni í viðundandi horf innan 4 vikna. Verði ekki brugðist við því mun skipulags- og byggingarfulltrúi beita áður nefndum ákvæðum laga um mannvirki til að knýja á um úrbætur.