Menningar- og ferðamálanefnd - 206
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3357
29. ágúst, 2013
Annað
‹ 11
12
Fyrirspurn
Lögð fram fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 19. ágúst sl.
Svar

Lagt fram til kynningar. 12.1. 1308226 - Lista- og hönnunarmiðstöð í Straumi, samningur. Lögð fram drög að samningi. Menningar- og ferðamálafulltrúa falið að senda fyrirliggjandi drög á forsvarsmenn Lista- og hönnunarmiðstöðvarinnar. 12.2. 1308227 - Yfirlit yfir gjaldtökuleiðir ferðamannastaða, skýrsla Lögð fram skýrsla sem Ferðamálastofa lét vinna. Rætt um skýrsluna. 12.3. 1202073 - Stefnumótun menningar- og ferðamálanefndar í ferðamálum. Samkvæmt ferðamálastefnu Hafnarfjarðarbæjar skal vinna tímasetta áætlun fyrir árslok um form og staðsetningu ferðamannaskilta. Menningar- og ferðamálanefnd óskar eftir að sviðið Umhverfi og framkvæmdir vinni að útfærslu í samráði við menningar- og ferðamálafulltrúa fyrir tilsett tímamörk. Eins verði sett í forgang að finna áningarstað fyrir útskotsskilti við innkomun í bæinn við Reykjanesbraut. Ýmsir kostir ræddir.