Klukkuvellir 28-38
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 347
6. maí, 2014
Annað
‹ 11
12
Fyrirspurn
Eigendur Klukkuvalla 40-50 óska eftir að deiliskipulagi lóðar nr. 28-38 við Klukkuvelli verði breytt og húsaröðin felld út. Skipulags- og byggingarfulltrúi tók neikvætt í erindið 03.07.13. Skipulagið var auglýst á lögboðinn hátt og vissu íbúar að hverju þeir gengu þegar þeir keyptu íbúðir á svæðinu.
Svar

SBH telur að ekki sé ástæða til að fella niður byggingarlóðir í hverfinu enda hafi verið gert ráð fyrir uppbyggingu á þessu lóðum allt frá því að hverfið var skipulagt. Athugasemdum við mögulegan frágang við götu er vísað til nánari útfærslu framkvæmda þegar byggingu mannvirkja er lokið að mestu.
Skipulags- og byggingarráð tekur undir afgreiðslu skipulags- og byggingarfulltrúa.