Skerseyrarvegur 5, framkvæmdir, úttektir og skráning
Skerseyrarvegur 5
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 464
12. júní, 2013
Annað
Fyrirspurn
Byggingarfulltrúi samþykkti árið 2007 breytingar á húsinu Skerseyrarveg 5, sem hefur áhrif á stærð íbúða. Síðasta skráða úttekt er á þakvirki, hvorki fokheldis- né lokaúttekt hefur farið fram. Einnig þarf að skila inn eignaskiptayfirlýsingu þar sem stærðir eigna í húsinu breytast.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir byggingarstjóra skylt að boða til fokheldisúttektar, en lokaúttektar hafi mannvirkið verið tekið í notkun, sbr. lög um mannvirki nr. 160/2010. Jafnframt er bent á ábyrgð eiganda að hafa eftirlit með störfum byggingarstjóra samkvæmt sömu lögum.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 122206 → skrá.is
Hnitnúmer: 10037723