Heiðvangur 8, framkvæmdir, úttektir og skráning
Heiðvangur 8
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 463
5. júní, 2013
Annað
Fyrirspurn
Byggingarfulltrúi samþykkti á árinu 2008, viðbyggingu og fleiri breytingar á Heiðvangi 8. Á loftmynd sést að hluti breytingana hefur verið gerð en síðasta úttekt á þakvirki var með athugasemdum. Það vantar bæði fokheldis- og lokaúttekt.
Svar

Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir byggingarstjóra skylt að boða til fokheldisúttektar, en lokaúttektar hafi mannvirkið verið tekið í notkun, sbr. lög um mannvirki nr. 160/2010. Jafnframt er bent á ábyrgð eiganda að hafa eftirlit með störfum byggingarstjóra samkvæmt sömu lögum.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 120745 → skrá.is
Hnitnúmer: 10031782