Drekavellir 24b,fyrirspurn til skipulags- og byggingafulltrúa
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 478
18. september, 2013
Annað
Fyrirspurn
Jennifer Ágústa Arnold óskar eftir að Hafnarfjarðarbær taki þátt í kostnaði við uppsetningu girðingar til að hindra átroðning yfir lóðina til að stytta sér leið yfir á strætóbiðstöð.
Svar

Fram til þessa hefur Hafnarfjarðarbær ekki komið að girðingaruppsetningu þar sem íbúðalóðir koma að bæjarlandi, heldur hafa lóðarhafar séð um slíkar framkvæmdir.