Menningar- og ferðamálanefnd - 204
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3353
13. júní, 2013
Annað
‹ 13
14
Fyrirspurn
Lögð fram til kynningar fundargerð menningar- og ferðamálanefndar frá 10.6. sl.
Svar

Lagt fram til kynningar. 14.1. 1304347 - Straumur 2013 Á fundi Bæjarráðs þann 30. maí sl. var ákveðið að ganga til viðræðna við Ólöfu Erlu Bjarnadóttur, Sigurlínu Margréti Ousala og Hildi Ýr Jónsdóttur um rekstur listiðnaðar-og hönnunarmiðstöðvar í Straumi. Var menningar- og ferðamálafulltrúa falið að leita eftir samningum við ofangreinda aðila. Menningar - og ferðamálanefnd vonar að fljótt verði hægt að ganga frá samningum og að starfsemi hefjist fljótlega í Straumi. 14.2. 1304182 - Ráðhústorg grænkun Skrifstofa menningar- og ferðamála mun taka þátt í verkefninu með því að sjá um sumarmarkað á Ráðhústorginu. Menningar- og ferðamálanefnd fagnar framtaki Skipulags- og byggingarráðs. 14.3. 0906147 - Ferðamálahópur ÍTH Skrifstofa menningar- og ferðamála mun hafa yfirumsjón með ferðamálahópi ÍTH í sumar. Auk þess að kynna Hafnarfjörð fyrir ferðafólki mun hópurinn einnig sjá um sumarmarkað á Ráðhústorginu. Góð reynsla hefur verið af Ferðamálahópi ÍTH og frábært að fá þau til starfa í sumar.