Miðbær Hraun vestur, deiliskipulag.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 652
10. júlí, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Á fundi skipulags- og byggingarráðs þann 26.06. s.l. var tekið fyrir deiliskipulagið Miðbær Hraun Vestur eftir endurauglýsingu. Auglýsingartími var frá 04.04. til 16.05. 2018. Athugasemdir bárust frá tveimur aðilum. Umsögn skipulagsfulltrúa um þær dags. 20.6.2018 var lögð fram. Skipulags- og byggingarráð tók undir umsögn skipulagsfulltrúa. Með tölvupósti dags. 03.07.2018 óskar Hjalti Steinþórsson lögmaður eftir því að koma á framfæri andmælum við umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20.06.2018.
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkir að verða við beiðni Hjalta Steinþórssonar samanber tölvupóst dags. 03.07.2018.