Miðbær Hraun vestur, deiliskipulag.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1717
22. janúar, 2014
Annað
Fyrirspurn
3.liður úr fundargerð SBH frá 14.janúar sl. Tekið til umræðu deiliskipulag reits sem afmarkast af Austurgötu, Reykjavíkurvegi, Álfaskeiði, lóðamörkum húsa austan Hverfisgötu og Læknum. Að hluta til nýtt skipulag og að hluta til endurskoðun deiliskipulags Miðbæjar 1981. Deiliskipulag Hverfisgata-Mjósund-Austurgata-Gunnarssund verði fellt inn í deiliskipulagið. Lögð fram tillaga að skipulagslýsingu og húsaskráning (vinnuskjal). Skipulags- og byggingarráð samþykkir deiliskipulagslýsinguna með áorðnum breytingum, þ.m.t. stækkun skipulagsreitsins þannig að austurmörk hans verði við Arnarhraun, og að farið verði með lýsinguna skv. 40. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Nafni svæðisins verði breytt í Miðbær-Hraun austur. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir deiliskipulagsslýsingu fyrir Miðbæ-Hraun dags. 14.1.14, þ.m.t. stækkun skipulagsreitsins þannig að austurmörk hans verði við Arnarhraun, og að farið verði með lýsinguna skv. 40. grein skipulagslaga nr. 123/2010."
Svar

Sigríður Björk Jónsdóttir tók til máls.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar saþykkti fyrirliggjandi tillögu með 10 samhljóða atkvæðum.