Miðbær Hraun vestur, deiliskipulag.
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 5 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1811
19. september, 2018
Annað
Fyrirspurn
7.liður úr fundargerð skipulags- og byggingaráðs frá 11.september sl. Lögð fram að nýju, að lokinni kynningu og endurauglýsingu, tillaga að breyttu deiliskipulagi Miðbær Hraun Vestur. Breytingin tekur til reits sem afmarkast af Austurgötu, Reykjavíkurvegi, Álfaskeiði, lóðamörkum húsa austan Hverfisgötu og Læknum. Að hluta til nýtt skipulag og að hluta til endurskoðun deiliskipulags Miðbæjar 1981. Deiliskipulag Hverfisgata-Mjósund-Austurgata-Gunnarssund verði fellt inn í deiliskipulagið. Á fundi skipulags- og byggingarráðs 31.10.2017 var samþykkt að auglýsa tillöguna að nýju vegna athugasemda Skipulagsstofnunar. Auglýsingartími var frá 4.4. til 16.5.2018. Athugasemdir bárust frá tveimur aðilum og lá fyrir umsögn skipulagsfulltrúa um þær 20.6.2018. Veitt var heimild til að koma að frekari athugasemdum á fundi skipulags- og byggingarráðs þann 10. júlí s.l. samanber bréf Hjalta Steinþórssonar dags. 25.7.2018. Lagt fram svar skipulagsfulltrúa dags. 10.9.2018 við síðari athugasemdum Hjalta.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir erindið og vísar til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Svar

Til máls tekur Ágúst Bjarni Garðarsson.

Bæjarstjórn staðfestir samhljóða afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs.