Aðalskipulag Hafnarfjarðar breyting Mjósund 10
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 árum síðan.
Bæjarstjórn nr. 1703
8. maí, 2013
Annað
Fyrirspurn
2.liður úr fundargerð SBH frá 30.apríl sl. Mjósund 10 ehf sækir 19.04.13 um að aðalskipulagi fyrir lóðina Mjósund 10 verði breytt þannig að hún verði á íbúðarsvæði í stað svæðis fyrir stofnanir.
Skipulags- og byggingarráð felur skipulags- og byggingarsviði að vinna breytinga á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005-2025 í samræmi við erindið. Lagt er til að farið verði með breytinguna skv. 36. grein skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar: "Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að unnin verði tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005-2025 fyrir lóðina Mjósund 10, þannig að notkun verði breytt úr svæði fyrir stofnanir í íbúðarsvæði. Farið verði með breytinguna skv. 36. grein skipulagslaga nr. 123/2010. "
Svar

Sigríður Björk Jónsdóttir tók til máls.

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti framlagða tillögu með 11 samhljóða atkvæðum.