Hverfisgata 23,breyting
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 árum síðan.
Skipulags- og byggingarráð nr. 322
14. maí, 2013
Annað
Fyrirspurn
Stefán Ingimarsson sækir 17.04.13 um að rífa anddyri og skúr aftan við húsið. Byggja nýtt anddyri við byggingu aftan við hús og hækka portveggi og ris. Samkvæmt teikningum Páls V.Bjarnasonar dag.22.03.13. Frestað á síðasta fundi.
Svar

Á hluta Hverfisgötu er skilgreind hverfisvernd í deiliskipulagi og telur ráðið að fara þurfi varlega í breytinga á húsum sem liggja að götu einnig á þeim svæðum sem ekki eru þegar hluti af deiliskipulögðu svæði. Af þeim sökum er óskað eftir frekari kynningu á tillögunni á næsta fundi. Jafnframt er starfsmönnum Skipulags - og byggingarsviðs falið að taka saman upplýsingar um stækkun nærliggjandi húsa miðað við upphaflega stærð.