Hafnarstjórn - 1425
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3348
18. apríl, 2013
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram fundargerð hafnarstjórnar frá 16.4. sl.
Svar

Lagt fram til kynningar. 13.1. 1209314 - Markaðssetning Haukur Óskarsson framkvæmdastjóri hjá Mannviti mætti á fund hafnarstjórnar og hélt áfram kynningu sinni frá 19. febrúar sl. Haukur kynnti áform um námavinnslu á Grænlandi og möguleg viðskiptatækifæri þar. 13.2. 1109041 - Fjárhagsáætlun, uppgjör og ársreikningur 2012 Lögð fram drög að ársreikningi Hafnarfjarðarhafnar fyrir árið 2012.
Hafnarstjóri skýrði reikningana.
Hafnarstjórn samþykkir að vísa drögum að ársreikningi til bæjarráðs og síðari umræðu í hafnarstjórn. 13.3. 1303023 - Veð í húsnæði hafnarinnar Lagt fram erindi Hafnarfjarðarbæjar um að veð Íslandsbanka í húsnæði Hafnarfjarðarhafnar haldi sér. 13.4. 1210116 - Umsókn um stækkun lóðarinnar Fornubúðir 3 Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags lóðanna Fornubúðir 3 og Cuxhavengötu 2. Hafnarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti þessa breytingu á deiliskipulagi lóðanna og vísar málinu til byggingar-og skipulagsráðs 13.5. 1303503 - Aðstaða fyrir sölueiningar á hafnarsvæði Lagt fram erindi Icecard ehf um aðstöðu fyrir sölueiningar á hafnarsvæði. Hafnarstjórn tekur jákvætt í erindið fyrir sitt leyti.