Skarðshlíð lóðaúthlutun
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 7 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3440
11. ágúst, 2016
Annað
Fyrirspurn
Lagt fyrir bæjarráð í umboði bæjarstjórnar:
Tillaga: Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir að auglýsa úthlutun á fjölbýlishúsalóðum í Skarðshlíð.
Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir að óskað verði eftir tilboðum í fjölbýlishúsalóðir í Skarðshlíð en lágmarksverð þeirra verði samkvæmt samþykktri gjaldskrá.
Svar

Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar samþykkir að auglýsa úthlutun á fjölbýlishúsalóðum í Skarðshlíð.

Með vísan til almennra reglna um úthlutun lóða og sölu byggingarréttar sem samþykktar voru í bæjarstjórn 13. apríl 2016, samþykkir bæjarráð að bjóða út fjölbýlishúsalóðir í Skarðshlíð. Auglýsa skal eftir tilboðum í lóðirnar en lágmarksverð skal vera samkvæmt samþykktri gjaldskrá.

Samþykkt með 5 samhljóða atkvæðum.