Brettafélag Hafnarfjarðar
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 7 árum síðan.
Bæjarráð nr. 3434
19. maí, 2016
Annað
Fyrirspurn
Tekin fyrir afgreiðsla umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 4. maí: 1303149 - Brettafélag Hafnarfjarðar Tekið fyrir að nýju beiðni um viðbótarhúsnæði að Flatahrauni 14 fyrir Brettafélagið sem bæjarráð vísaði til umhverfis- og framkvæmdaráðs. Umhverfis- og framkvæmdaráð gerir ekki athugasemd við nýtingu viðbótarhúsnæðis á Flatahrauni 14 að því gefnu að ekki falli til viðbótarkostnaður.
Svar

Bæjarráð samþykkir erindi Brettafélags Hafnarfjarðar um viðbótarhúsnæði.