Brekkugata 22, byggingarleyfi breyting
Brekkugata 22
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 10 árum síðan.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa nr. 462
29. maí, 2013
Annað
Fyrirspurn
Sigurður B.Stefánsson sækir 28.02.13 um að gera eina íbúð í tvíbýlishúsi sjá meðfylgjandi gögn. Samkvæmt teikningum Stefáns Arnar Stefánsonar dags.16.08.12. Undirskriftir nágranna bárust 05.03.2013. Nýjir uppdrættir bárust 30.4.2013.Nýjar teikningar bárust 24.05.13
Svar

Skipulags- og byggingarráð samþykkti erindið fyrir sitt leyti 14.05.13.
Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkir byggingaráformin í samræmi við 11. grein mannvirkjalaga nr. 160/2010. Byggingarleyfi verður gefið út þegar skilyrði 1-4 liðar 13. greinar mannvirkjalaga hafa verið uppfyllt.
13. gr. Útgáfa byggingarleyfis.
Skilyrði fyrir útgáfu byggingarleyfis eru eftirfarandi:
1. Mannvirkið og notkun þess samræmast skipulagsáætlunum á svæðinu.
2. Aðal- og séruppdrættir hafa verið yfirfarnir og leyfisveitandi hefur áritað þá til staðfestingar á samþykki.
3. Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd, svo sem gatnagerðargjald samkvæmt ákvæðum laga um gatnagerðargjald og bílastæðagjald eða gjald fyrir skipulagsvinnu samkvæmt ákvæðum skipulagslaga, eða samið um greiðslu þeirra. Undanskilin eru þó gjöld sem falla ekki í gjalddaga fyrr en við útgáfu byggingarleyfis.
4. Byggingarstjóri hefur undirritað yfirlýsingu um ábyrgð sína og afhent leyfisveitanda undirritaða ábyrgðaryfirlýsingu þeirra iðnmeistara sem ábyrgð munu bera á einstökum verkþáttum.

220 Hafnarfjörður
Landnúmer: 120191 → skrá.is
Hnitnúmer: 10029977